Fátt betra á föstudegi en að fá í hendurnar glóðvolgt fréttabréf SSNE!
Fréttabréfið er stútfullt af áhugaverðum fréttum af vettvangi SSNE og við mælum með lestri til að stytta tímann fram að helgarfríi!
Efst á baugi er forfrumatsskýrsla um Líforkuver í Eyjafirði sem nú er hægt að lesa á heimasíðu SSNE. Þá verða styrkjum úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra úthlutað við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 2. febrúar í Valsárskóla á Svalbarðsströnd. Hátíðin hefst kl. 15:00 og reiknað er með að hún sé um það bil 1 klst.
Ef þú hefur áhuga á að mæta má skrá sig til leiks hér en það eru allir velkomnir.
Þetta og ýmislegt fróðlegt aflestar í nýjasta fréttabréfi SSNE.
Með kærri kveðju! Starfsfólk SSNE
|